Gautrekur frá Torfastöðum og Hekla Katharína efst í fjórgangi ungmenna á Gullmótinu og unnu líka töltið
júní 17, 2011Tungufljótsdeild
júní 14, 2011Hér er niðurstaða héraðsdóms Suðurlands í máli um rétt eigenda til að veiða í eigin landi þegar veiðiheimildir hafa verið leigðar þriðja aðila S-521-2010
Torfastaðir tiltekt fyrir brúðkaupið!!!
júní 14, 2011Það var mikill handagangur í öskjunni á Torfastöðum um helgina (Hvítasunna) Börn, tengdabörn og barnabörn öll mætt til að láta hendur standa fram úr ermum og árangurinn eftir því. Allt tekur miklum breytingum, gerði máluð, stéttar þrifnar og órækt hreinsuð. Enn er þó nóg eftir þótt margt sé búið. Hlökkum mikið til næstu vikna… Gaman gaman.
Björt formaður Geðhjálpar
apríl 18, 2011
Setti hér smá úrdrátt úr frétt mbl.is, ég er svo stolt af dótturinni og vona að henni farnist vel í nýju og krefjandi verkefni:
Björt Ólafsdóttir var kjörin formaður Geðhjálpar um helgina. Hún tekur við af Sigursteini Mássyni sem núna gengur úr stjórn eftir 12 ára aðkomu að starfsemi Geðhjálp. Björt Ólafsdóttir er stjórnunarráðgjafi hjá Capacent. Í tilkynningu segir, að Björt þekki vel til geðheilbrigðismála, einkum málefna barna og unglinga af starfi foreldra hennar á Torfastöðum í Biskupstungum og sem starfsmaður geðdeilda Landspítalans um árabil. Björt er með meistaragráðu í mannauðstjórnun frá Lundarháskóla í Svíþjóð og með B.A gráðu í sálfræði og kynjafræði frá HÍ. Hún leggur auk þess stund á meistaranámi heilsuhagfræði við HÍ.
Barnabörnin okkar
apríl 6, 2011Skólaþing í Bláskógabyggð
apríl 6, 2011Skólaþing hefur átt hug minn allan. Það tengist auðvitað ekkert hestunum en ég má bara til með að setja inn nokkrar myndir til að sýna öllum þann áhuga sem nemendur, kennarar og foreldrar barna í Grunnskóla Bláskógabyggðar sýndu á skólaþinginu. Það var mjög gaman að finna fyrir gleðinni og stoltinu af skólanum okkar og þeim frábæru einstaklingum sem eru í og koma að skólanum.
Ný vefsíða í loftið!
mars 1, 2011Ný vefsíða fyrir Torfastaði er loks komin í gagnið.
Torfastaðir eru í Biskupstungum, á leiðinni að Geysi og Gullfossi, um 88 kílómetra frá Reykjavík, mjög stutt frá Skálholti. Ólafur Einarsson og Drífa Kristjánsdóttir eiga Torfastaði og búa þar. Þar var einnig rekið Meðferðarheimilið Torfastöðum á árunum 1979-2004.
Njótið vel