Komið að leiðarlokum. Topprekur og Valgautur frá Torfastöðum eru að fara erlendis og komast ekki heim aftur. Sölvi reynslunni ríkari kveður vini sína.
Komið að leiðarlokum. Topprekur og Valgautur frá Torfastöðum eru að fara erlendis og komast ekki heim aftur. Sölvi reynslunni ríkari kveður vini sína.
Hér fyrir neðan fylgir flott myndband af Síbíl og Davíð sett inná Facebókina í dag. Klikkið á línuna hér fyrir neðan. Móðir: Silkisif frá Torfastöðum IS1994288501 Faðir: Gígjar frá Auðsholtshjáleigu IS2000187051 Síbíl frá Torfastöðum og Davíð Óskarsson
Árni Baldursson opnaði Tungufljótið sjálfur og veiddi fyrsta laxinn í sumar. Skemmtilegt. Nokkrar myndir af atburðinum við fossinn Faxa.
Kom heim á Torfastaði af skemmtilegu ættarmóti á Höfn, afkomendur Guðlaugar Helgu. Allt með kyrrum kjörum á Torfastöðum en nokkrar hryssur höfðu þó kastað á meðan við vorum í burtu. Tók nokkrar myndir af ungviðinu og mæðrum þeirra.
Frigg og Stormur voru í pössun á Torfastaði og dvöldu í rúman sólarhring . Á sunnudeginum kastaði Ríkey frá Torfastöðum og það var spennandi að fá að klappa nýja folaldinu hennar. Faðirinn er Hárekur frá Torfastöðum.
Ég set inn nokkrar myndir af afmælisveislunni í Aratungu og svo hjálpuðu barnabörnin afa sínum að taka upp pakkana daginn eftir.
Fannar og börn auk Kára vinar komu í gær og við borðuðum í hádeginu úti, amma grillaði og allir duglegir að borða enda búin að vinna mikið, girða og hjálpa …
Guðrúnu Helgu tengdadóttir mín vann útfrá Marie Antoinette og skilaði verki sínu svona. Flott hjá henni, mjööög flott. Gaman að skoða sýningu 7 nemenda í fatahönnunardeildinni (fyrsta ár) sem þær settu upp og sýndu á föstudaginn. Hér koma nokkrar myndir af … Continue reading
Við fengum hluta af sendinefnd Kínverjanna í stutta heimsókn áðan. Þeir vildu m.a. skoða folaldið sem við gáfum fyrir tveimur árum til Kína.
Mig rak í rogastans þegar ég hitti þessar rollur á beit á útsýnispallinum fyrir ofan Laugarvatn og fleiri ofan vegar þann 17. apríl 2012. Taldi rúmlega 50 kindur.