← Older posts

Torfastaðir, yndislegt veður og borðað úti í fyrsta sinni á árinu.

Posted on by drifa

Fannar og börn auk Kára vinar komu í gær og við borðuðum í hádeginu úti, amma grillaði og allir duglegir að borða enda búin að vinna mikið, girða og hjálpa …

Grill úti í fyrsta sinni 2012 (29.4.2012) Frigg matast með sólgleraugu Afi sker niður í barnabörnin

Guðrún Helga sýnir í Listaháskólanum

Posted on by drifa

Guðrúnu Helgu tengdadóttir mín vann útfrá Marie Antoinette og skilaði verki sínu svona.  Flott hjá henni, mjööög flott. Gaman að skoða sýningu 7 nemenda í fatahönnunardeildinni (fyrsta ár) sem þær settu upp og sýndu á föstudaginn.  Hér koma nokkrar myndir af verki Guðrúnar Helgu og gestum.

Guðrún Helga Hönnuður framtíðarinnar Marie Antoinette verk Guðrúnar Helgu

Kínversk sendinefnd á Torfastöðum

Posted on by drifa

Við fengum hluta af sendinefnd Kínverjanna í stutta heimsókn áðan.  Þeir vildu m.a. skoða folaldið sem við gáfum fyrir tveimur árum til Kína.  Ísey í útreiðum. Kínverjar skoða hesta Kínverjar í heimsókn

Fann sauðfé síðasta vetrardag 17. apríl 2012.

Posted on by drifa

Mig rak í rogastans þegar ég hitti þessar rollur á beit á útsýnispallinum fyrir ofan Laugarvatn og fleiri ofan vegar þann 17. apríl 2012.   Taldi rúmlega 50 kindur.  Kindur Kindur á útsýnispalliKindur hvert er markiðEnn fleiri kindurKindur séð yfir LaugarvatnFé ofan vegar.

Páskadagur á Torfastöðum 2012

Posted on by drifa
Við höfum notið yndislegrar fjölskyldu síðan á föstudag.  Páskadagur var eins skemmtilegur og alltaf hér á Torfastöðum.  Mjög gaman og yndislegt að fá að njóta.

Sigrún Rósa Steinsdóttir Stormur og Aníta ræða páskaeggin Gunnur Líf, Harpa og Frigg Amma Bía, Guðrún Helga og Eldur Ólafur les málshættina sem hann fékk og Harpa hlær. Hrafnhildur, Fannar og Kjartan lesa heimagerða málshætti og gleðjast

Geirrekur frá Torfastöðum

Posted on by drifa

Geirrekur frá Torfastöðum og Hekla KatharínaHekla Katharína og Geirrekur á brokkiHekla Katharína þjálfar stökk hjá GeirrekiGeirrekur stillir sér uppGeirrekur í námi og þjálfun hjá Heklu Katharínu.

Hekla Katharína var að senda mér þessar myndir sem eru teknar af Rakel systur hennar.  Ég þakka fyrir.  Geirrekur frá Torfastöðum IS2007188501 spennandi gæi.

Garpur, Frigg og Stormur í pössun 25.2.2012

Posted on by drifa

Frigg, Stormur, Garpur og afi Óli í leik á tölvunniStormur, Garpur og Frigg gæða sér á ísStormur, Frigg og Garpur Barnabörnin í pössun á Torfastöðum í lok febrúar 2012.  Eru að hjálpa afa að læra á I-podinn sinn.

Gautrekur og Hekla Katharína heimsmeistarar 2011

Posted on by drifa

Gautrekur frá Torfastöðum og Hekla Katharína Kristinsdóttir fagna sigri

Myndbönd:  Gautrekur frá Torfastöðum og Hekla Katharína vinna heimsmeistaratilil 2011

Heimsmeistarar í fjórgangi ungmenna 2011 í Austurríki

Úrslitakeppnin í fjórgangi á HM 2011 og hér: Gautrekur heimsmeistari ungmenna í fjórgangi

Hárið hittingur eftir 40 ár

Posted on by drifa

Ég var í mjög skemmtilegu samkvæmi um helgina.   Við sem tókum þátt í fyrstu uppfærslu á Hárinu árið 1971 sem leikfélag Kópavogs setti  upp í Glaumbæ, við hittumst og áttum mjög skemmtilega samveru, teyti, endurupplifun, í leikhúsi Brynju Ben. heitinnar og Erlings Gíslasonar.  Það átti mjög vel við enda var Brynja Benediktsdóttir leikstjórinn og við berum öll mjög hlýjan hug til hennar.

Ánægjulegur september

Posted on by drifa

Afmælisbarnið Birgir og vinir.Ísey og Amma Bía.

Það hefur svo margt skemmtilegt verið um að vera í september hjá mér. Þrjú afmæli fjölskyldumeðlima og þrennar vígsluathafnir í sveitarfélaginu. Birgir hélt uppá 30 ára afmæli sitt og  Ísey varð eins árs 19. sept. 2011

← Older posts