


Svipall IS2004188504 vann A-flokkinn á Hestaþingi Loga 2011. Hann hlaut einkunnina 8,47 og stóð sig mjög vel. Kristinn Bjarni Þorvaldsson keppti á hestinum. Þeir voru flottir. Komu inn í úrslitin í öðru sæti og unnu sig upp í fyrsta sætið. Hér eru nokkrar myndir úr keppninni teknar af Berglindi.

Hér er Gautrekur tilbúinn til að fljúga til Austurríkis og keppa á heimsmeistaramótinu með Heklu Katharínu Kristinsdóttur. Nú er bara að krossleggja fingur vona að allir haldi heilsu og verði uppá sitt besta í komandi keppnum. Tu, tu tu.
Brúðkaupsdagur Guðrúnar Helgu og Elds var á laugardaginn 9. júlí 2011. Yndi
slegur dagur, yfir 200 gestir. Sr. Magni gifti og veislan var haldin í Aratungu. Þvílík gleði og hamingja allir glaðir og brúðhjónin yndisleg. Skemmtileg brúðkaupsveisla í Aratungu langt fram undir morgun.
Ég fékk svo flotta mynd af Garpi og Frigg senda frá Birgi að ég stóðst ekki mátið og stakk henni hér á fréttasíðuna mína.

Þau standa sig vel Hekla Katharína og Gautrekur frá Torfastðum. Eru í efsta sæti ungmenna á Gullmótinu (úrtöku fyrir heimsmeistarakeppnina) Þau voru líka að vinna töltið fengu einkunnina 7;50. Húrra fyrir þeim. Unnu bæði töltið og fjórganginn.
Hér er niðurstaða héraðsdóms Suðurlands í máli um rétt eigenda til að veiða í eigin landi þegar veiðiheimildir hafa verið leigðar þriðja aðila S-521-2010

Setti hér smá úrdrátt úr frétt mbl.is, ég er svo stolt af dótturinni og vona að henni farnist vel í nýju og krefjandi verkefni:
Björt Ólafsdóttir var kjörin formaður Geðhjálpar um helgina. Hún tekur við af Sigursteini Mássyni sem núna gengur úr stjórn eftir 12 ára aðkomu að starfsemi Geðhjálp. Björt Ólafsdóttir er stjórnunarráðgjafi hjá Capacent. Í tilkynningu segir, að Björt þekki vel til geðheilbrigðismála, einkum málefna barna og unglinga af starfi foreldra hennar á Torfastöðum í Biskupstungum og sem starfsmaður geðdeilda Landspítalans um árabil. Björt er með meistaragráðu í mannauðstjórnun frá Lundarháskóla í Svíþjóð og með B.A gráðu í sálfræði og kynjafræði frá HÍ. Hún leggur auk þess stund á meistaranámi heilsuhagfræði við HÍ.

Skólaþing hefur átt hug minn allan. Það tengist auðvitað ekkert hestunum en ég má bara til með að setja inn nokkrar myndir til að sýna öllum þann áhuga sem nemendur, kennarar og foreldrar barna í Grunnskóla Bláskógabyggðar sýndu á skólaþinginu. Það var mjög gaman að finna fyrir gleðinni og stoltinu af skólanum okkar og þeim frábæru einstaklingum sem eru í og koma að skólanum.