Author Archives: drifa

← Older posts Newer posts →

Páskadagur á Torfastöðum 2012

Posted on apríl 9, 2012 by drifa

Við höfum notið yndislegrar fjölskyldu síðan á föstudag.  Páskadagur var eins skemmtilegur og alltaf hér á Torfastöðum.  Mjög gaman og yndislegt að fá að njóta.

Geirrekur frá Torfastöðum

Posted on mars 11, 2012 by drifa

Hekla Katharína var að senda mér þessar myndir sem eru teknar af Rakel systur hennar.  Ég þakka fyrir.  Geirrekur frá Torfastöðum IS2007188501 spennandi gæi.

Garpur, Frigg og Stormur í pössun 25.2.2012

Posted on febrúar 26, 2012 by drifa

Barnabörnin í pössun á Torfastöðum í lok febrúar 2012.  Eru að hjálpa afa að læra á I-podinn sinn.

Gautrekur og Hekla Katharína heimsmeistarar 2011

Posted on janúar 12, 2012 by drifa

Myndbönd:  Gautrekur frá Torfastöðum og Hekla Katharína vinna heimsmeistaratilil 2011 Heimsmeistarar í fjórgangi ungmenna 2011 í Austurríki Úrslitakeppnin í fjórgangi á HM 2011 og hér: Gautrekur heimsmeistari ungmenna í fjórgangi

Hárið hittingur eftir 40 ár

Posted on nóvember 21, 2011 by drifa

Ég var í mjög skemmtilegu samkvæmi um helgina.   Við sem tókum þátt í fyrstu uppfærslu á Hárinu árið 1971 sem leikfélag Kópavogs setti  upp í Glaumbæ, við hittumst og áttum mjög skemmtilega samveru, teyti, endurupplifun, í leikhúsi Brynju Ben. … Continue reading

Ánægjulegur september

Posted on október 9, 2011 by drifa

Það hefur svo margt skemmtilegt verið um að vera í september hjá mér. Þrjú afmæli fjölskyldumeðlima og þrennar vígsluathafnir í sveitarfélaginu. Birgir hélt uppá 30 ára afmæli sitt og  Ísey varð eins árs 19. sept. 2011

Svipall frá Torfastöðum vann A-flokkinn.

Posted on ágúst 2, 2011 by drifa

Svipall IS2004188504 vann A-flokkinn á Hestaþingi Loga 2011. Hann hlaut einkunnina 8,47 og stóð sig mjög vel. Kristinn Bjarni Þorvaldsson keppti á hestinum. Þeir voru flottir. Komu inn í úrslitin í öðru sæti og unnu sig upp í fyrsta sætið. … Continue reading

Gautrekur kominn til Austurríkis

Posted on júlí 26, 2011 by drifa

Hér er Gautrekur tilbúinn til að fljúga til Austurríkis og keppa á heimsmeistaramótinu með Heklu Katharínu Kristinsdóttur.  Nú er bara að krossleggja fingur vona að allir haldi heilsu og verði uppá sitt besta í komandi keppnum.  Tu, tu tu.

Brúðkaup á Torfastöðum

Posted on júlí 13, 2011 by drifa

Brúðkaupsdagur Guðrúnar Helgu og Elds var á laugardaginn 9. júlí 2011.  Yndislegur dagur, yfir 200 gestir.  Sr. Magni gifti og veislan var haldin í Aratungu.  Þvílík gleði og hamingja allir glaðir og brúðhjónin yndisleg.  Skemmtileg brúðkaupsveisla í Aratungu langt fram undir morgun.

Garpur og Frigg í Borgarfirðinum

Posted on júní 20, 2011 by drifa

Ég fékk svo flotta mynd af Garpi og Frigg senda frá Birgi að ég stóðst ekki mátið og stakk henni hér á fréttasíðuna mína.

← Older posts Newer posts →